Velkommen

Mr.Ólafsson bloggar frá Danaveldi

25.12.2008 21:01:27 / stefan_olafs

Gleðileg Jól kæri vinir

Gleðilega jólahátíð kæru vinir

Ef þetta er ekki tíminn til að rifja upp lykilorðið fyrir bloggið þá veit ég ekki hvað. Fjölskyldan hefur haft það mjög gott. Þetta er í fyrsta skiptið sem við erum bara fjögur yfir jólahátíðina í DK og meira að segja allir heima á aðfangadag.

Dagurinn byrjaði snemma á þorláks vorum vöknuð rétt eftir hálf sex heimiliskjéllinn og frúin þurftu að mæta til vinnu kl: 07:00. Systurnar þurftu að fara á nýjan leikskóla það var frí hjá starfsfólkinu í leikskólanum sem þær eru í.

Eftir vinnu og leikskóla var haldið heim og byrjað að taka til dót fyrir skötuveislu hjá Íslenska félaginu eins og þær systur segja. Já það hefur nátturulega ekki komið fram að við skötuhjú erum í stjórn Íslendingafélagsins í Árósum. Oddý er meira að segja gjaldkeri takk fyrir það.

Félagið hélt skötuveislu hérna í forsamlingshúsi í Harlev það var að sjálfsögðu meira á borðum salfiskur og SS pylsur. Valrún pantaði vestfirskan fisk fyrir okkur og það er óhætt að segja að hann sló í gegn. Reyndar suðum við skötuna úti ég hef nú ekki fengið nýjustu mengunartölur hvort það hafi verið einhver lægð yfir Harlev.

Aðfangadagur gekk í garð og fjölskyldan naut þess að vera saman í rólegheitum og ró. Við meira að segja tókum þetta á íslenska tempóinu og byrjuðum ekki að borða fyrr en kl. hálf átta takk fyrir.

 Það var nú búið að heyrast mjög oft yfir daginn þegar við erum sko búnar að borða þá megum við opna pakkana. Það stóðst nánast og eftir pakka opnun sofnuðu systurnar í nýju stólunum sínum með söng frá Villa Vill.

Oddný fór að vinna í dag og við feðginin höfum verið að skiptast á að horfa á tónleika með Villa Vill eða Ólátagarð. En við erum búin að borða norðlenskt hangikjét og uppstúf með öllu tilheyrandi getur ekki verið betra.

Vegna anna breyttist jólabréfið þetta árið frá fjölskyldunni  í nýársbréf og verður það sent út í tölvutækuformi.

Fjölskyldan í Århus óskar ykkur gleðilegra jóla  :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 12:00:27 / stefan_olafs

Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð

Ég spyr nú bara er ekki allt í lagi með fólk í dag? Rakst á þessa frétt inni á mbl í dag.

Sænskur drengur hefur valdið uppnámi þar í landi með því að bjóða ekki tveim skólabræðrum sínum í átta ára afmælið sitt. Hefur skólinn sem drengirnir ganga í sakað afmælisbarnið um að brjótta rétt á hinum tveim með því að skilja þá útundan. Hefur skólinn farið með málið fyrir sænska þingið.

Frá þessu greinir fréttavefur BBC. Þar segir ennfremur að stjórnendur skólans, sem er í Lundi, segi að ef boðskortum sé dreift á skólalóðinni megi ekki mismuna nemendum.

Faðir drengsins hafi kvartað við umboðsmann sænska þingsins, og segi að ástæður þess að sonur sinn hafi ekki boðið umræddum skólabræðrum séu þær, að annar þeirra hafi ekki boðið honum í sitt afmæli, og vinslit hafi orðið með syni sínum og hinum drengnum.

Drengurinn dreifði boðskortunum í tíma, og þegar kennarinn varð var við að tveir strákar fengu ekki boðskort gerði hann öll kortin upptæk.

„Sonur minn er alveg miður sín út af þessu,“ sagði pabbi stráksins við Sydsvenska Dagbladet. „Það hefur enginn rétt til að leggja hald á eigur annarra með þessum hætti. Þetta er eins og að stela pósti.“

Úrskurður í málinu verður væntanlega felldur í september, áður en næsta skólaár byrjar, segir BBC.

MBL.is


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 19:51:18 / stefan_olafs

Það komst rúm upp á efri hæðina á Rauðlundarvegi

Já sæl langt síðan síðast en ekki svo :)

Sem sagt fjölskyldan kom aftur til DK á sunnudaginn og það hefur fjölgað um einn fjölskyldumeðlim. Kolbrún frænka kom með okkur út og ætlar hún að vera aupair hjá okkur í sumar.

Við höfðum það mjög fínt á Íslandi nóg að gera en það fylgir Íslandsferðum við skrifum meira um það síðar.

Annars stærstu fréttirnar hér á bæ er að það komst upp rúm á efri hæðina að stærðinni 140 X 200. Það þýðir ekkert annað en að auperin fái gott rúm að sofa í og skötuhjúin komust auðveldlega að niðurstöðu um hvaða rúm ætti að kaupa.
 
Annars vorum við komin í Ikea í gær þegar það var hringt frá leikskólanum þá var Ásrún búin að æla þannig að ekki var hægt að kaupa rúm í það skiptið.

Við sem sagt sóttum rúmið í dag það var leigð kerra hjá Ikea og dólað með skeiðvöllinn heim í sveitina. Við fórum að bera völlinn við stigan það var sama hvaða stellingar við prófuðum völlurin sat alltaf fastur.

Húskarl ákvað að taka til sinna bragða og fór í rifrildi við stigan í húsinu sem endað þannig að stolt stigans var rifið niður sem sagt miðfóturinn. Húskerling var með ákveðnar efasemdir um að þetta myndi takast hjá karli sínum en stiginn hélst uppi þrátt fyrir að stoltið var fjarlægt.

Rúmið komst upp en það þurfti nú aðeins að ýta við því og er óhætt að segja að veggurinn við stigan þurfi á smá viðhaldi eftir aðgerðirnar. En húskarlinn gat talað stigan til aftur og engin skrúfa afgangs betra getur það ekki verið.

En í þessum skrifuðum orðum er húskerlingin að tala til eitt stykki kommóðu frá Ikea.

Verðum i bandi síðar.
Kveðja Stigafjölskyldan   

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 21:31:21 / stefan_olafs

Nei þú hér

 

Gaman að sjá þig hér langt síðan síðast ” ég ákvað rétta að kíkja hérna inn en það verður að viðurkennast að það er langt síðan síðast spurning hvar á að byrja ”.

Hættum þessu rugli eldamennskan, uppvaskið og mæðgur sofnaðar þetta kvöldið. Reyndar mun húskerlingin vakna á eftir þessi elska er að fara á nætuvakt á eftir. Það er spurning hvar á að byrja jú að sjálfsögðu Oddný er orðin þrítug og er enn bara 29. Oddný fékk heldur betur glæsilega afmælisgjöf sem erfitt er að toppa en Brynja og Árni eignuðust litla prinsessu á afmælisdegi Oddnýjar.

Þeir sem eru ekki búnir að frétta það þá er ég hættur á Radisson SAS ákvað það í byrjun maí að þetta væri orðið gott. Þetta var komið út í vitleysu varðandi launin sem ég átti að fá þetta var ekki alveg að gera sig hjá þeim. Þannig að núna er ég heimvinnandi hússtjórnarstjóri með systurnar heima þar sem leikskólakennarar eru í verkfalli hér í DK.

Það má nú ekki gleyma því að við skötuhjú festum kaup á gasgrilli á afmælisdegi Oddnýjar. Það var nú ekki samansett og til að gera þetta auðvelt fylgdu ekki skrúfurnar með því. Þeir sem mig þekkja vita að ég hef ekki þolinmæði fyrir því að bíða í 2 daga eftir að fá sendar skrúfurnar ( þó ég sé búinn að búa í Dk í næstum 2 ár ). Þannig að verslunarstjórinn fann fyrir mig skrúfurnar sem þurfti að nota J. Hússtjórnarstýrurnar hér í Harlev voru í afmæliskaffi þegar ég byrjaði að skrúfa og setja saman. Það var nú eitthvað haft á orði að þetta kæmist nú ekki saman þennan dag enda var garðurinn allur undirlagður af grillpörtum. Enn viti menn ég kom grillinu saman og streitumörkin voru undir mörkum þrátt fyrir að setja þetta saman og vera með 5 börn á svæðinu. Við ættleiddum Guðjón, Ísak og Söru í einn sólarhring. Það var allavega grillað á grillinu og þessi þrítuga hissa á táningnum hversu geðgóður hann var J.

Það var ákveðið að halda afmælispartý 3 maí varð fyrir valinu og fjöldi gesta boðið. Í upphafi var ákveðið að hafa þetta einfalt en síðan fór einhver að fá hugmyndir veit ekki hver J. Það voru fest kaup á partýtjaldi til að allir gætu borðað saman, nágrannar mínir voru mikið að spá í hvað væri í gangi. Þetta var frábært kvöld ekta íslenskt partý Tópasinn á lofti, gítar og söngur hvað getur verið betra.

Systurnar byrjuðu á nýjum leikskóla í maí það var aldeilis ekki vandamál fyrir þær. Það munaði líka um að þær voru búnar að vera hérna í mánuð og kynnast krökkunum hér á svæðinu. Það hefur orðið aldeilis breyting á eftir að við fluttum hingað eru þær nánast alltaf úti að leika sér. Þær eru byrjaðar að æfa fótbolta á fullu reyndar einu sinni í viku með hinum strákunum. Eftir að þær voru búnar að fara á æfingu númer 2 var ákveðið að kaupa fótboltaskó það var sko ánægja með það.

Á föstudaginn fórum við á tónleika með með vestfirðingnum Mugsion hér í Århus. Þetta voru fínustu tónleikar gaman að sjá íslenska tónlistarmenn á svæðinu. Við Oddný tókum svo rútuna heim vorum barnlaus,  systurnar voru hjá Árna og Brynju. Við skelltum okkar á sveitapöbbinn hér í Harlev en síðan bættust hinar hússtjórnarstýrurnar við. Já ætli við setjum ekki bara punktinn hér en þetta var fínasta kvöld J.

Euróvisonpartý var haldið hér á Rauðlundarvegi 311 með pompi og prakt. Eina ferðina enn var hústjaldinu tjaldað og samankomnir Íslendingar að grilla og fylgjast með Euró. Þ Friðrik og Regína stóðu sig rosalega vel en við vorum svekktust að fá ekki að sjá þau fagna 12 stigunum frá Denmark.

Það er komið á hreint við erum að koma 11 júní á klakan og förum aftur 22 júní. Þetta verður stíf dagskrá útskrift, útskriftarafmæli á Akureyri og skírn fyrir utan allar heimsóknirnar.

Ritandinn er eitthvað farinn að flökkta á milli rása en við sendum knús og kossa úr sólinni hér í DK.

 

Við verðum í bandi síðar

           


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 22:56:04 / stefan_olafs

Opið hús á Rauðlundarvegi

Kæru vinir

Í tilefni þess að húskarl og kerling á Rauðlundarvegi í Latabæ verða sextug á árinu ætla þau skötuhjú að vera með opið hús.

Teitið verður haldið laugardaginn 3 maí og verður staður og stund auglýst síðar. Í boði verða góðar veitingar bæði í föstu og fljótandi formi.

Okkur þætti gaman að sjá sem flesta og þeir sem eru ákveðnir í að mæta í teitið eru beðnir um að senda mail á tefan_olafs@hotmail.com">stefan_olafs@hotmail.com eða hringja í síma 496 0457.

Með bestu kveðju
Stefán og Oddný

» 11 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 16:22:53 / stefan_olafs

Fyrstu skrif á Rauðlundarvegi

 

Fyrstu skrif á Rauðlundarvegi

Jæja elskurnar mínar loksins gefst tími til að setjast niður hérna á Rauðlundarvegi og skrifa smá pistil. En við erum semsagt flutt stór fjölskyldan og eru næstum því búin að vera hér í viku. Það er ekki hægt að segja annað en okkur líki mjög vel í nýju bæjarfélagi, ég tali nú ekki um systurnar sem eru búnar að vera á fullu úti að leika síðan þær fluttu.

Það kom í ljós seinni partinn á laugardaginn að fimmti fjölskyldu meðlimurinn var mættur á svæðið. Í vikunni kom svo í ljós að hann var búinn að koma sér vel fyrir því hann vildi greinilega láta vita að hann væri hérna hjá okkur. Svo ég útskýri þetta betur þá hefur allt frá upphafi allt einhver að handan fylgt fjölskyldunni. Þegar við fluttum hingað til DK þá fylgdi afi Böðvar okkur.

 

Það gerðist hér á laugardaginn þegar ég ætlaði að skila flutningabílnum þá fundust ekki lyklarnir af bílnum. Lyklarnir fundust ekki fyrr en á sunnudeginum og þá var ég búinn að hringja niður á bílaleigu til að kanna hvort þeir ættu ekki aukalykla nei vinur ef þú kemur ekki með bílinn fyrir hádegi rukkum við þig um annan sólarhring. Lyklarnir síðan fundust og er óhætt að segja að það var búið að eyða nokkrum klukkutímum í leit ég tala nú ekki um þolinmæðisþruskuldinn sem var farinn að titra J.

 

Þegar ég kom heim eftir vinnu eitt kvöldið var Oddný eitthvað frekar undarleg og talaði um að hún hefði nú verið næstum búin að hringja í mig í vinnuna. Oddný hafði rekist á blátt ljós sem systurnar áttu en það var orðið batteríislaust fyrir nokkrum vikum síðan. Allt í einu var það byrjað að blikka á fullu og Oddný reyndi allt til að slökkva á því en viti menn ekki tókst það. Í mestum makindum var hún síðan að horfa á sjónvarpið þegar allt í einu skiptist yfir á útvarpið. Það gerist stundum þegar stillt er inn á útvarpsstöð sem sendir út umferðarfréttir en það voru sko engar umferðarfréttir í gangi á þeim tíma. Oddný skiptir yfir á sjónvarpið aftur en eftir stutta stund horfir hún á magnarann og sér þá þegar ljósið færist yfir á útvarpið og fjarstýringin er á borðinu. Viti menn engar umferðarfréttir í það skiptið. Þannig að næsta mál er að hafa samband við Þórhall miðil til að fá botn í þetta mál annars bauð Oddný pabba sinn velkominn þetta afdrifaríka kvöld. Við bíðum reyndar eftir því hvort að Ásrún eigi eftir að tjá sig um hvort hún sjái einhvern í þessu húsi.

 

Við feðginin fórum í bíltúr á sunnudaginn skoðuðum sveitina okkar reyndar var ég sá eini sem sá eitthvað því að systurnar notuðu tækifærið og lögðu sig á meðan. Það verður að segjast eins og er að það er mjög skemmtilegt umhverfi hérna í nágrenni við okkur. En þarna á sunnudaginn hélt ég að ég væri fluttir í Latabæ hér eru allir að hlaupa og mikið af hjólafólki. Ekki má nú gleyma því að annar hver maður er úti að ganga með hundinn sinn. Systurnar tala um Harlev sem Hvanneyri og er það alveg rétt hjá þeim því hér erum við að upplifa þetta að fólk er að bjóða hver öðrum góðan daginn úti á götu. Í gær vorum við að keyra inn í smábæ rétt hjá Harlev og við eitt húsið voru þjár konur að vinna í garðinum þegar við keyrðum framhjá heilsuðu þær okkur. Við nátturulega heilsuðum á móti og það var sko greinilegt að vorum flutt í sveitina ekki slæmt það.

 

Oddný fór í kaffiboð í gærmorgun það var haldið hérna í næsta húsi, mér skilst að þar hafi verið mættar 8 íslenskar konur. Það er komin svona Despirate housewife stemming í þetta strax fyrstu vikuna J.

Annars skipumst við á að vinna skötuhjúin Oddný að vinna í kvöld síðan fer ég að vinna um helgina frá 12:00 – 00:00. Ég er kominn í Ala Carte þar sem við erum að elda fyrir gesti sem panta sér af matseðli. Þetta er orðið aðeins meira púsluspil eftir að við fluttum en þetta hefst allt saman. Við þurfum að fara að fjárfesta í öðrum bíl eins og það er nú skemmtilegt að standa í því hér í DK.

Það má nú ekki gleyma stærstu fréttinni í sumar ætlar Kolbrún Ósk frænka mín að gerast aupair hjá okkur. Þannig að það verður líf og fjör hjá okkur og síðan krossum við fingur að við fáum gott sumar þar sem hægt er að sóla sig í garðinum.

Ekki veit ég hvað húskerlingin á heimilinu ætlar að gera við rúmið sitt en botninn á rúminu kemst ekki upp á efri hæðina. Hún hefur þær hugmyndir að rífa stigan niður og fá síðan pabba sinn til að koma frá Íslandi til að setja hann upp aftur. Annars var ég í símasambandi við Kristján á sunnudaginn til að fá upplýsingar um hvort ég gæti ekki tekið út eina einingu í eldhúsinnréttingunni. Eftir að hann var búinn að skoða myndir kom í ljós að þetta væri möguleiki. Það er spurning fyrir Oddnýju að fara að mynda stigann fram og til baka.

Í lokin langar mig til þakka Árna, Herdísi, Sibbu, Dikku og Guðjóni fyrir að hjálpa okkur að flytja. Dikka fær verðlaun fyrir tilþrif dagsins þar sem hún nánast vippaði þvottvélinni niður stigana í bláa húsinu :lol::lol: 

 Við sendum góðar kveðjur og knús og kossa yfir til Englands til ömmu súkkulaði, ömmu Þóru, Guðrúnar frænku, Margrétar frænku og Péturs frænda. Það er nóg pláss á Rauðlundarvegi ef þið ætlið að framlengja ferðinni J.

Megi þið eiga góða helgi kæru vinir.

 

Biðjum að heilsa að sinni.

 

Fjölskyldan á Rauðlundarvegi


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 18:26:57 / stefan_olafs

Flutningar á næsta leyti


Eins og fyrirsögnin segir til um ætlar familían að hafa hýbýla skipti á laugardaginn næstkomandi. Hér er nánast búið að setja allt í kassa og orðið frekar lítið pláss fyrir kátar systur að leika sér.

Við fengum afhenta lykla að nýju íbúðinni í dag það leið ekki á löngu fyrr en var farið að reyna að skipuleggja höllina. Eftir að búið var að mæla fram og til baka þá kemst sófinn ekki fyrir þar sem hann átti að vera. Þannig að fyrsta uppstillingarplani var vísað úr nefnd og tillaga númer 2 tekin fyrir. 

Þeir hjá Vísi hafa ekki endurbætt myndakerfið hjá sér eða ég kann ekki á þá þannig að þið getið skoðað myndir af nýju íbúðinni hjá systrunum inni á barnalandi.

Ekki meira að sinni innanhúss skipulagningarnefndin er að fara að taka til starfa.

PS, þeir sem hafa áhuga á að upplifa vorið í DK eru velkomnir til að hjálpa til að flytja á laugardaginn :) :).

Hlökkum til að sjá ykkur

Fjölskyldan í bláa húsinu


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 21:51:42 / stefan_olafs

Búinn að segja upp á SAS

  Búinn að segja upp á SAS


Þessa stundina er þreytt húskerling að koma ofurhressum systrum í rúmið enda kominn háttatími hér í DK.

Ég vil byrja á því að óska Guðmundi litla bróðir innilega tilhamingju með áfangan í dag litli drengurinn er tvítugur í dag. Það er á þessum stundum sem maður væri alveg til í að vera á Íslandi og taka þátt í góðum degi en við hér í bláa húsinu erum með í anda J.

Það er annars að frétta að ég er búinn að segja upp á SAS atvinnulaus í augnablikinu allavega þangað til í næstu viku þá ætla ég að ráða mig aftur á SAS. Í stuttu máli þá er ég að segja upp til að fá hærri laun takk fyrir, ég nefninlega fékk vitlaus grunnlaun og til að geta leiðrétt það þarf að ég að skrá mig atvinnulausan í minnsta kosti 24 tíma til að geta fengið hærri grunnlaun.

Ég var á fullu í gær að vinna í þessu máli með góðri hjálp frá Rikke á SAS en hún sér um launamálin. Ég þurfti að skrá mig atvinnulausan hjá jobcenter og hún sendi mig þangað ekki vandamálið. Þegar ég kom þangað og afhenti blað upp á uppsögn á námssamningnum var ég spurður strax afhverju ég vildi ekki halda þessu námi áfram. Þar sem það átti að fara í kringum kerfið gat ég ekki annað en sagt að ég hefði ekki áhuga á þessu námi. Það var nú ekki nóg heldur tók við 20 min yfirheyrsla um hvað ég ætlaði mér í lífinu og ég veit ekki hvað og hvað.

Það endaði með því að Rikke sendi mig beint til náungans sem hún var í sambandi við hjá Jobcenter. Ég talaði við hann Ole sem skráði mig í kristilega A-Kassann og tilmeldaði mig atvinnulausan með det samme J. Það má ekki gleyma því að þetta var einmitt dagurinn sem við skötuhjú áttum frí saman í langan tíman en við hittumst reyndar á leikskólanum til að sækja börnin en svona er lífið.

Við feðginin skelltum okkur út í fótbolta í morgun í þessu frábæra veðri. Það var búið að vera mikið fjör hjá systrunum í boltanum og Ásrún átti tilþrif dagsins, hún var að fara að sparka en hitti ekki alveg þannig að hún fleytti kerlingar á rassinum og lá síðan bakinu í blautu grasinu. Ásrún var að öll í drullu frá baki og niður úr þannig við fórum að skipta um föt.

Eftir nokkrar vangaveltur var ákveðið að skella sér í gelluföt og fara með strætó niður í bæ og kaupa ís. Þegar ég kom úr sturtu þá var búið að taka til á mig sparibuxur og ég veit ekki hvað. En þær systur voru frekar móðgaðar af því ég ætlaði ekki í gellujakkanum. Við keyptum okkur ís í bænum og meira að segja fórum út að borða nóg um að vera hjá okkur.

Þegar húskerlingin kom heim í dag eftir strembin vinnudag ákvaðum við að fara í vettvangsferð til Harlev. Oddný tók eftir því að búið var að fjarlægja markisuna í 311 en það er númerið á íbúðinni okkar. Það dugði ekkert annað en að leggjast á glugga á nýju heimkynnunum til að skoða þetta nánar og reyna að fara að skipuleggja ( Oddný). Systurnar voru mjög ánægðar með þetta allt saman ég tala nú ekki um þegar við fórum á leikskólan. Þær léku sér á fullu á  meðan foreldrarnir lágu á glugganum til að kanna aðstæður.

Annars er ég kominn í páskafrí en við ætlum að skella okkur til Köben á Skírdag og vera þar í 4 daga. Hlynur og Magga ætla að vera í Köben um Páskana við ætlum að nota tækifærið að hitta þau og gera eitthvað skemmtilegt saman það er nú alveg á hreinu.

Við verðum í bandi síðar

Kveðja frá Århus 

      


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 22:50:35 / stefan_olafs

Súkkulaði húskarl

 Súkkulaði húskarl

Þreyttur húskarl er sestur við skriftir með útilegu kyndiofnin sér við hlið og með kveikt á öllum kertum. Það verður gott að geta flutt í húsnæði þar sem maður getur ákveðið hvaða hitastig maður vill hafa. Frekar pirrandi þessi skömmtunarstefna á hitastigi hér í bláa húsinu.

 Annars var ég að koma heima rétt í þessu búinn að vera á kokkafundi í allan dag fórum síðan í gokart á eftir. Þar náði ég að landa þriðja sætinu og bikarinn er kominn upp á hillu takk fyrir. Ég síðan náði rétt að skófla í mig áður en Oddný þurfti að fara á nætuvakt en svona er lífið hjá fjölskyldunni. Húskarl og kerling skiptast á að vinna vaktavinnu meðan englarnir eru að taka leikskólan með trompi J.

Það styttist í flutninga hjá fjölskyldunni spurning hvort það sé ekki kominn tími á að fara að pakka eða hvað. Þetta er ekki það skemmtilegasta sem maður gerir en mér skilst að Oddný sé búinn að undirstinga alla íslenska karlmenn í Harlev um að hjálpa sér með að flytja. Það kom á daginn eftir þorrablótið að hún hafði talað við alla karlmennina í Harlev en konurnar töluðu við mig. Mér sýnist á öllu að við séum að fara að flytja í gott samfélag.

Vel á minnst þorrablótið tókst þetta líka rosalega vel þrátt fyrir smá stress á tímabili. Ef ég ætlaði mér að skrifa allt það sem gerðist fyrir og á blóti þá yrði það að doktorsritgerð held ég. Við fengum heldur betur góða gesti og afmælisbörn á blótinu mömmu, Möggu, Hlyn, Grétar og Gerðu. Þau komust öll þrátt fyrir miklar seinkanir og margra tíma bið í fljúgvél út á flugbraut. Í skaðabætur fengu þau að upplifa gott vetrarveður hér í DK en hér er nú en þetta fínasta veður. Krókósarnir farnir að láta sjá sig á umferðareyjunum spurning hvort að vorið sé ekki á næsta leyti.

Eftir þorrablótið var komið eitthvað tómarúm hjá húskarlinum hér á bæ og bar hann undir húskerlinguna hvort það væri nú ekki sniðugt að þau myndu halda upp á 60 afmælið í DK. En þessi hugmynd er reyndar enn í nefnd en þið væntanlega fáið að heyra um þetta allt saman þegar nær dregur. Innflutningspartý og afmæli það getur ekki verið betra en það er nú samt ekki gifting í vændum allavega ekki strax.

Systurnar keppast við að skrifa á hverjum degi nánast komnar með stafina á hreinu það kæmi mér nú ekki á óvart að þær væru farnar að lesa fljótlega. Herdís var að passa þær í dag þangað til að Oddný kom heim hún var á dagvakt. Herdís var eitthvað að kíkja í skápinn inn í eldhús þá kemur Þóra og segir hvað ert þú að gera? Ég er bara að vita hvort það sé til eitthvað gott þá heyrist í Þóru það er sko bara brauð í boði J já rúgbrauð eða venjulegt brauð hvað viltu.

Það er búin að vera strembin vika á hótelinu við vorum með fullt hús í gistingu og síðan var stór ráðstefna. Ef þið viljið fá uppskrift af súkkilaðimús fyrir 1130 manns getið þið haft samband við mig. Á fimmtudaginn var þessi stóra veisla og það verður að viðurkennast að þetta var asskoti gaman að vinna það voru 7 kokkar og síðan allavega 30 – 40 þjónar að vinna. Ég var kominn með æluna upp í háls að gera súkkulaði mús fyrir 1130 manns en Oddný var sniðug í gær og gaf mér gjöf. Viti menn hvað haldið þið að ég hafi fengið jú bók með súkkulaði uppskriftum.  

Hér á bæ gengur allt út á að fara í GELLUpils, jakka og fleira. Við feðginin vorum að fara út í dag þegar heyrðist pabbi ætlar þú að fara í gellujakkanum þínum greinilega orðinn einn af gellunum. Það er kominn spenningur í systurnar að flytja það er farið að ræða hvort það sé ekki kominn tími á að þær fái sitt hvort herbergið. Það verður spennandi að sjá hvort þær eru tilbúnar í það systurnar.

Við fórum í gær út að borða viti menn skelltum okkur ekkert annað en Radisson SAS það var mjög fínt. Það lá reyndar við að við myndum panta herbergi einhver þreyta í fjölskyldunni eftir erfiða vinnuviku.

Ég held ég láti þetta duga að sinni kæru vinir við sendum góðar kveðjur en viljum benda á að ef ykkur er farið að lengja eftir fréttum þá erum við með íslenskan síma 496 0457 J J.

Fjölskyldan í bláa húsinu


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 11:47:26 / stefan_olafs

Fjölskyldan i dökk bláa húsinu

Fjölskyldan í dökk bláa húsinu 

Það er nú aldeilis búið að vera í nógu að snúast hjá fjölskyldunni síðustu daga. Í sakleysi okkar á laugardaginn þegar verið var að elda kvöldmatinn þá er bankað ansi kröftulega á útidyrahurðina. Við vorum nú að velta þessu fyrir okkur, Herdís var í heimsókn jú hún heyrði bankað. Þegar ég opna hurðina þá kemur þessi svarti reykur á móti mér viti menn það var kviknað í stigaganginum.  

Systurnar voru vafðar inn í sængur og teppi og síðan hlaupið út síðan datt nú húskarlinum í hug að hlaupa aftur inn til að opna alla glugga í íbúðinni til að koma reyknum út. Það gekk ágætlega að komast upp í íbúðin sem var full af reyk. Á niður leiðinni var þetta orðið öllu svartara en það gekk upp að komast út aftur en það hafði einhver kveikt í fatapoka við útidyra hurðina.  

Slökkviliðið mætti á svæðið og slökkti í þessu en allur gangurinn var fullur af reyk. Ég þurfti nú reyndar að fara niður á slysó til að kanna með reykeitrun var nú ekki alveg á því að fara frá stelpunum og íbúðinni eins og hún var. Ég var nú mestan tíman í símanum að tala við Oddnýju biðja hana um að hringja í tryggingar og sitthvað fleira. Eftir hátt í 2 tíma ferli niður á slysó kom í ljós að það var allt í góðu hjá mér.  

Það skrýtnasta var nú að þurfa sjálfur að nýta sér sjúkrabíl sem fararkost og lenda í þessum aðstæðum. Þegar maður var í löggunni kom maður á vettvang síðan þegar maður fór af vettvangi þá var allt búið. En núna þurfti að fara að pæla í hinu og þessu og bjarga sér í danska kerfinu. 

Alltaf miðar maður við hvernig hlutirnir eru framkvæmdir á Íslandi en það er ekki alveg eins hér í Dk allavega ekki okkar tilfelli. Við fengum þær upplýsingar hjá tryggingunum á laugardagskvöldið að hafa bara samband á mánudaginn takk fyrir það.

Þannig að fjölskyldan settist upp á Árna og Brynju enda var ekki hægt að vera í íbúðinni fyrir reykjarlykt. Reyndar var okkur boðið að vera hjá þeim næstu mánuðina þau voru ekki alveg á því að við færum aftur í bláa húsið. 

Í gær fórum við í tryggingarnar og við bárum upp erindi okkar og gáfum upp kenntitölur. Gaurinn fer í tölvuna jú stemmir þið eruð tryggð hér síðan fer hann og hringir og réttir síðan Oddnýju síman útskýrðu erindi þitt við tjónadeildin ath engin persónuleg þjónusta hér ferð. 

Oddný ber upp fyrstu spurninguna bíddu aðeins ég þarf að kanna þetta fær hún á móti. Svona gekk þetta í smá tíma þangað til við skötuhjúin urruðum á viðstadda þjónustu fulltrúa og spurðum hvort þetta væri eðlilegt að maður þyrfti að tala í síman til að fá upplýsingar.

Þá stóð ein konan upp og skokkaði og náði í starfsmann í tjónadeildinni. Við fengum þær upplýsingar að það yrði haft samband við fyrirtæki til að meta hvað þyrfti að gera hjá okkur. Það var nú besta þjónustan sem við fengum í gær þeir komu fljótlega til okkar og mættum með einhverja vél sem tekur alla lykt J nú er bara tyggjólykt í húsinu. Konan sem kom sagði að það þyrfti að þrífa alla íbúðina enda er sót út um allt. Við ætlum að gera þetta sjálf þar sem við höfum ekki mikið álit á dönskum standard í þrifum. 

Við vorum að skoða íbúð í dag hún er í bæ sem heitir Harlev hann er rétt fyrir utan Århus. Þar búa í kringum 4000 – 5000 manns og þar er allt til alls og við erum ekki nema 15 – 20 min að keyra inn til Århus fer eftir á hvað tíma dagsins maður er að ferðast.

Við stefnum á að byrja að þrífa í dag og reyna að klára það sem fyrst svo við getum nú flutt inn aftur. Það besta við þetta að ekki var byrjað að þrífa stigaganginn í gær en það átti kannski að byrja á því í dag. Það hefur nú lítið upp á sig fyrir okkur að byrja að þrífa þegar ekki er búið að þrífa sótið og drulluna í stigaganginum.

Þetta gengur allt frekar hægt hérna í DK að okkar mati en annars erum við bara hress og kát. Systrunum leist vel á íbúðina í morgun spennandi að geta hlaupið beint út garð og geymt hjólið sitt út í skúr. 

En ætli ég láti þetta ekki duga að sinni við sendum sót kveðjur frá dökk blá húsinu. 

Fjölskyldan í Århus    


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 17:12:00 / stefan_olafs

Áttu bát

Áttu bát 

Húskarlinn á heimilinu druslaðist á fætur fyrir klukkan fjögur í morgun til að mæta í vinnuna. Nú er ég starfsmaður á morgunverðarplani og á morgun er genaralprufan hjá mér. Því um helgina á ég að sjá um að gera klárt fyrir morgunmatinn á SAS all by my self.

 

Nú er hafin sú umræða hjá húskarli og kerlingu að fá sér aupair til starfa en það er verið að púsla saman vöktum fram og til baka. Ég var að fá nýtt vaktaplan og næstu 8 daga verð ég í vinnunni takk fyrir. En að vísu fæ ég gott frí í kringum aðal helgina þannig að ég er bara sáttur með það. 

Annars var nú hringt frá leikskólanum á miðvikudaginn og spurt hvort að systurnar væru á leiðinni í skólan? Mamman svaraði frekar ný vöknuð Kurt þú varst að vekja okkur ég held að við höfum sofið yfir okkur. Báðir foreldrar voru í fríi og þá er nú ekki alveg farið eftir klukkunni. En það náðist að fá sér að borða og koma börnunum í ferðlagið þeim til mikillar ánægju. 

Þóra var eitthvað þreytt eftir leikskólan um daginn og spurðum við hana hvort hún ætti bágt, þá heyrðist í Ásrúnu ha Þóra áttu bát J 

Jólamyndir og áramótamyndir get ég lofað að þær koma allvega eftir þorrablót það sem málið gengur út á núna er Århusblot 2008 takk fyrir.  

Annars er það handboltinn í kvöld það var ein áhugamanneskja í vinnunni sem ræddi mikið um handbolta. Hún spurði mig á hvaða stöð Íslands leikurinn væri en ég var nú ekki alveg viss á því, hún rauk þá til og kannaði málið.  Hún hafði aðallega áhyggjur að börnin heima hjá henni vildu horfa á Disney stundina frekar en Danaleikinn og hún átti bara eitt sjónvarp. 

Það eru enn til miðar á blótið ef einhver vill skella sér í gott partý bara að hafa samband J. Skella sér í vorblíðuna í DK ( að minnsta kosti þegar þetta er skrifað ), en ég verð nú að segja að það er ágætt að vera laus við snjóinn.  

Jæja löngu orðið nógu gott  Bið að heilsa og verðum í bandi síðar. 

MR. Ólafsson    


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 20:34:41 / stefan_olafs

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla. Ég vil byrja á því að óska þeim Frikka og Hlynir til hamingju með 30 afmælið nú í byrjun janúar. Þessu verður fagnað Hlynur minn 9 feb ekki spurning :)

Það verður að segjast eins og er að það er nú ekki mikið búið að gerast í blogg skrifum síðustu vikur. Það skrifast nú reyndar á tímaleysi því það verður að viðurkennast að þegar allir eru farnir að vinna fulla vinnu og sinna félagsmálum þá situr bloggið á hakanum.

En við höfðum það mjög gott yfir hátíðirnar þrátt fyrir sýnishorn af hinum og þessum flensu einkennum. Guðmundur bróðir kom fyrir jól svo kom Hvanneyrar fjölskyldan fyrir áramót. Systurnar voru orðnar yfir spenntar um áramótin þannig að við tókum smá forskot á sæluna og brunuðum út í skóg að sprengja fyrir tólf.

Það þýddi ekkert annað en að sækja tvíburakerruna til að flytja sprengifarminn, að sjálfsögðu var farið eftir lögum og reglum og Særún Ósk sem er með lyftararéttindin á hreinu sá um að koma kerrunni upp á stóru hæðina. Við strákarnir sýndum listir okkar í uppskoti enda allaf gaman að skjóta upp í DK. Niðurstaða kvöldsins var að sú að á næsta ári verður keypt meira af kökum.

Við þökkum fyrir ánægjulegar samverustundir um hátíðirnar kæru ættingjar. Hið eðlilega líf er byrjað aftur hér í Danaveldi ég farinn að vinna á fullu aftur orðinn löglegur nemi. Ég er að flakka á milli deilda þannig að þetta er bara fjör. Systurnar voru frekar fúlar við mig fyrsta leikskóla daginn eftir frí. Pabbi erum við að fara aftur í sólina við eigum að fara í stóra skólan. Það var nefninlega mikil umræða í fríinu að það væri að styttast í að þær færu í stóra skólan en þær vildu nú bara byrja strax.

Það verður að segjast að það er nóg að gera í þorrablóts málum allt á fullu . Við fórum reyndar til Þýsklands í innkaupaleiðangur það þýddi ekkert annað en að leigja sendibifreið undir varninginn. Félagsskapurinn var góður Árni og Sibba sem eru sérlegir Harry og Heimir aðdáendur sáu um að halda ökumanninum vakandi.

Við skelltum okkur á handbolta leik á sunnudaginn Sibba er að keppa með liði hérna í hverfinu hjá okkur. Þetta var hin besta skemmtun og lét maður nú aðeins í sér heyra á hliðarlínunni . Við erum búin að fá barnapössun fyrir þorrablótið

Mamma ætlar að skella sér til okkar, það var tilboð hjá Express í dag og hún fékk miða á hagstæðu verði. Ég var að segja systrunum frá því dag að amma Þóra ætlaði að heimsækja okkur já ok þá erum við að fara í frí á leikskólanum er það ekki .

Ég er kominn með skrifstofu hérna í svefniherberginu, skrifborð og stól allar græjur. Ég lagði undir mig eldhúsborðið í 2 daga sem var ekki alveg rosalega vinsælt þannig að þegar ég kom heim á föstudaginn var búið að skrúfa saman skrifborð. Ég og mínir þorrapappírar erum hérna í svefniherberginu.

Læt þetta duga að sinni og vonandi verður styttra á milli næst.

Mr. Ólafsson


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 17:59:43 / stefan_olafs

Det er hyggiligt

:lol:

Það nú ekki hægt annað að segja að systurnar séu komnar í jólaandan þær voru að setjast hérna inni í stofu með heitan grjónagraut og horfa á Tomma og Jenna. Allt í einu heyrist frá Þóru Ásrún þetta er hyggeligt min ven :) :)

 Annars vorum við á jólaballi á leikskólanum og ótrúlegt en satt að þá voru systurnar ekkert hræddar við jólasveininn góða. 

 Ég er að reyna að finna einhverja hugmynd að skemmtilegum grímubúning því það er julefrokost á fimmtudaginn í vinnunni. Mér skilst nú að við erum ekki að fara í hefðbundinn jólamat enda allir komnir með leið á öllu jule matarkynns :).

 Við verðum í bandi síðar

 Mr.Ólafsson 


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 16:32:46 / stefan_olafs

Jólasveinn klukkan sex

Jólasveinn klukkan sex 

Þetta gengur nú ekki alveg kæru vinir ekkert að gera á þessari síðu í fleiri vikur J. Það er nú reyndar allt of langt að ætla að skrifa um þær vikur sem hafa liðið.  

Fjölskyldan hefur það mjög gott og höfum við verið að aðlaga okkur að dönsku fjölskyldulífi í síðustu viku. Við byrjuðum á að vakna klukkan sex um morguninn og vorum við feðginin mætt á leikskólan klukkan hálf sjö fyrst allra. Ótrúlegt en satt voru systurnar bara þær sprækustu en það hjálpar nú til að hafa sveinka með sér í liði. Það var ótrúleg upplifun hjá systrunum að fá í skóin og kannski í fyrsta skipti að þær eru að skilja hvað eru jól og allt sem því tengist.

En það voru miklar pælingar varðandi jólasveininn en þær voru með það alveg á hreinu að hann hafi ekki séð þær því þær sváfu sko í mömmu og pabba rúmi. Það var best samt þegar við vorum að ganga út úr húsinu þá fóru allt í einu að læðast ég spurði þær hvað þær væru að gera. Jú viti menn þær vildu bara hafa það á hreinu að jólasveinninn væri farinn heim til sín J. 

Ég er byrjaður að vinna á fullu á Radisson SAS það er mjög fínt og yfirdrifið nóg að gera. En það verður að viðurkennast að það er frekar skondin tilfinning að vera svona nemi allt í einu en maður verður víst að gíra sig niður í það.  

Við sóttum okkur jólatré í morgun og þetta í fyrsta skipti sem að jólatréð passar inn í stofuna og það þarf ekkert að saga eða klippa til greinar eða topp. Húsfrúin á heimilinu hefur alltaf haft áhuga fyrir að hafa stórt jólatré en nú komust allir aðilar að samkomulagi með jólatréð og hjálpuðumst við feðginin að saga tréð. 

Við skötuhjúin skelltum okkur á tónleika með Big Band DR en þar var Eivör Páls að syngja og hann Bobo. Þetta voru mjög fínir tónleikar og það var greinilegt að það voru margir Íslendingar sem mættu á tónleikana mikið um íslenskar raddir í salnum. 

Ég ætlaði bara að láta vita að við værum á lífi fjölskyldan við reynum að standa okkur betur í skrifum og myndum.  

Verðum í bandi Fjölskyldan í bláa húsinu 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 22:41:30 / stefan_olafs

Þorrablót í Århus 2008

 

Er ekki um að gera að nota bloggið til að plögga fyrir þorrablótið í Århus 2008.

Kíkið á auglýsinguna

http://isfan.dk/auglysingar/thorrablot2008.pdf


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan